Ef þú segir að ég sé tossi, þá ert þú tossi!!

Ruglið í mér!!

20.02.2007 15:53:23 / mýrdal

....

 

  Er að flytja mig yfir á bloggar.is :D það er kanski ekkert mikið komið inn þar en það kemur á næstu dögum......

Nýja bloggið er stbjorg.bloggar.is 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 12:32:46 / mýrdal

Lasin ;(

Er ekki alveg eins gott að setja inn hérna smá rugl eins og að horfa bara á tv endalaust!!

Jú það kom að því.... Steinunn er veik :cry:  ég hélt svo að ég væri sloppin við þennann vibba sem er að ganga eeeennn nei! verð bara að segja að þetta er ekki það þægilegasta sem ég veit um:$ en það þýðir víst lítið að væla útaf því, bara taka á honum stóra sínum og borða verkjalyf og sofa;) ekki gott skal ég segja ykkur!! annars veit ég ekki alveg hvað ég á að skrifa um hérna:$ jú ég  fór með Ingu Rós og honum Benjamín árna í ungbarnasundið þeirra á sunnud, það var rosa fínt fæ kanski að fljóta með aftur seinna;) svo er nú farið að styttast heldur betur í sjómannadaginn!!! bara tæpir 4 mán!! þessi vetur er búinn að vera svo fljótur að líða! sumar eftir 3 mán :haha: bara gaman að því sko!!

en æji já ætla  að leggja mig :$


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 16:08:29 / mýrdal

hundabað á þvottastöð....

jáhh skellti mér uppí fjall með hundinn, flott að fá smá hreyfingu þar (ekki veitir af):$..... Hektor var sko BRÚNN!!! þegar við komum til bara, hann á sko að vera gulur:haha: þá var náttúrulega ekkert annað í stöðunni en að koma við á þvottaplaninu hjá olís og þvo greyið, skolaði reynar af bílnum í leiðinni;)

Annars er voða lítið að frétta, jú mér finnst alveg voðalega einkennilegt hvað þeir sem kíkja hérna inn eru fámálir!! þ.e commenta ekki og skrifa ekki í gestabók!                 Ekki það að ég sé dugleg að blogga heheh...  ég var að hlusta á fm í morgun í bílnum og þau voru að fara yfir einhvern lista yfir hvað fólki finnst mest pirrandi við að vera of feitt.. og eitt commentið datt inn í hausinn á mér!!!! það er  það mest pirrandi við að vera of feitur er sveppasýkingin í fellingunum þ.e lyktin8| Hvað er málið með það ooojjjjj........ er það bara hægt!!   

Fyrsti hittingur fyrir bekkjarmótið er á morgun:D við sem vorum búin að bjóða okkur fram í nefnd ætlum að hittast hjá henni ´Laufey á morgun og það verður bara gaman sko:haha:   En já er að spá í að skreppa í krónuna og redda kvöldmatinum;)

bleble Steinunn Björg


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 13:17:39 / mýrdal

smá kreistingur

Það er voðalega skrítð hvað maður lifir einhæfu lífi svona þegar maður er ekki í skóla:lol:  skrýtið, þegar maður er í skólanum þá gjörsamlega telur maður niður dagana þangað til maður er "frjáls" og gerir sitt besta til að drepa tímann með því að læra nóg... Svo þegar þetta er loksins búið þá hefur maður eiginlega ekkert að gera nema bara vinna og nota fríið í að þvo þvott, Bíða eftir að Jón Gunnar komi heim og svo viðra hundinn!! voðalega fjölbreytt líf:P ég fór nú samt með þeim Ingu Rós og Benjamín Árna í sund um daginn, nánar til tekið á síðasta Laugardag það var rosa gaman hann Benjamín var að fara í sund í fyrsta skiptið og fanst það bara alls ekki svo slæmt skal ég segja ykkur,"synti" bara og spriklaði :haha: algjört krútt:!:  Það kom svona kaffigrúppa í gær (í vinnunni) og þau voru að byrja að skipuleggja fermingarmót... og þau voru að rifja upp hverjir voru ennþá lifandi!!!!! vá hvað það er ekki málið held ég:S  öruglega svolítð skrýtið að vera að reyna að telja saman og það er alltaf verið að stinga inn nei hann/hún er dáin/n...... en þarf vonandi ekkert að pæla í svoleiðis þegar við skipuleggjum okkar fermingarmót.... en já er farin að taka úr þvottavélinni ;)a


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 22:49:45 / mýrdal

bara rugl....

ég myndi segja að þetta væri sko bara rugl ha!! ég er sennilega alveg sjálfkjörin sem versti bloggari ever:lol: :lol:

jólin og áramótin búin:| þannig að það er ekki lengur hægt að fela sig á bak við það þó svo að maður fitni hehe;) þá er náttúrulega ekkert annað í stöðunni nema að taka sig á er þaggi bara.... reynum það allavega:$ 

Við Jón Gunnar og Hektor vorum á patró um jólin og sko í Góðu yfirlæti hjá elsku foreldrum mínum;) stoppið var reyndar stutt í þettað skiptið eða frá 23-26 des svo vann ég í 2 daga og bara komin í vikufrí aftur8) er semsagt búin að vera að gera ekki neitt núna í næstum viku, þreif nú samt allt hérna heima í dag alllveg ooobbboslega dugleg heheh, ætlaði nú samt í rvk að kíkja á hana silju systir mína og dúlla mér einhvað en það varð lítið úr því.. fer í á mánudaginn, væri gaman að hitta einhvað af fólki er það eru ekki allir að vinna:lol:

æji er hætt þessu rugli heheh nenni ekki að blogga núna..... alveg hámark letinnar ekki satt:!:

Já eitt að lokum: Krissa, Úlfar, Matthías og Ásgeir Darri til hamingju með litla stúf ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 12:34:17 / mýrdal

jól og nördar

Eruð þið að trúa þessu ég bara nennti að logga mig inn á þetta blogg mitt til að setja inn færslu!!8| þþvvíílíkur dugnaður:lol:  ohh ég ætlaði að reyna að fara í klippingu  og var meira að segja að spá í að verða aftur krulluhaus fyrir jólin og nei það er bara ekki laus tími :$ þannig að ég lýsi hér með eftir góðri hárgreiðslustofu:!:  en annars á maður alltaf að líta á góðu hliðarnar er það ekki.... og það góða er að ég er búin að kaupa ALLAAAARRR jólagjafirnar og á bara eftir að pakka inn:haha: 

Annars lenti ég í frekar skondnu atviki um daginn, ég var í vinnunni og það kom hópur út að borða og VVááá ég fékk svona ææææjjjii greyin þau voru svvvooo miklir nördar ég var alveg með kjánahroll frá tám og uppúr á meðan þau voru þarna!! hehe frekar skrítið að sjá fullorðið fólk hlæja að frekar vondum bröndurum... ég meina ég er náttúrulega með Ótrúlega góðann húmor ;) en þetta var bara ekki fyndið, og hvað er málið með að nudda hausinn á hvort öðru !! já en allavega þegar þau voru búin að borga með tilheirandi veseni þá vildi ein "nota tækifærið " og gefa mér "skemtilegt blað" ég þakkaði bara fyirr og hélt að þetta væri bara svona þrautablað eða einhvað svoleiðis svo þegar þau voru farin þá opna ég blaðið og það fyrsta sem ég las var "er votta jehova....." og blaðið fór í ruslið!! ohh langaði svo í  krossgátu!!

Núna fer líka að koma í ljós hvort ég komis heim um jólin... krossleggjum bara fingur og vonum það besta...

en þær "mæðgur" Þóra og Klara eru að koma til okkar Hektors við ætlum út að labba þannig að ég ætla að hætta þessu;) Klara er semsagt hundur (stóri dani) og þóra er vinkona mín mæli með þvi að þig skoðið myndir af klöru hún er MMMJJÖÖÖG falleg!! 123.is/lola

kiss kiss og knús knús


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 14:52:52 / mýrdal

28. Nóvember

Merkilegt hvað dagarnir...... og reyndar bara vikurnar fljúga áfram!! mér finns ég nýbyrjuð að vinna á Galito en jú það fer að skríða í 3 mánuði síðan ég byrjaði jahh eða 2 og 1\2..

Núna 24. nóv átti hún elsku mamma mín afmæli, Við Silja ákváðum að hafa smá afmæli, þetta endaði heima hjá mér og þessir 15-20 sem við ætluðum að bjóða urðu bara allt í einu að rúmlega 40 :lol: Við eigum "pínu" fleiri ættingja en við reiknuðum með8|  en við ákváðum að draga mörkin við systkynin..þetta hefði orðið þvílík súpa ef  öll systkynabörnin hefðu komið líka.... þessi yngstu fylgdu auðvitað með, þetta var all rosa gaman og fínt... verst að Silja var veik þennann dag og komst ekki :$ hefði verið skemmtilegra að vera öll þarna..

annars voða lítið að frétta eins og venjulega:haha: er bara að vinna og sofa og éta....  Já og eitt soldið frábært sem ég er að spá í að deila með ykkur ég á frí Jól OOOGGG áramót!! engin skiptivakt og ekkert vesen ;) bara nice...

en er farin að halda áfram við að gera ekki neitt :lol:  

Já Guðrún og Kristinn til hamingju með afmælin ykkar :!::!:a


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 00:09:39 / mýrdal

Hver er Bimbó??

Eins og sjá má á ég mér nú nýtt "áhugamál" júhh sko hún Steinunn Björg Gunnarsdóttir ófelía Langsokkur.... nei eiginlega bara ófelía.. er semsagt búin að læra að prjóna:lol: heheh núna er ég semsagt varla viðræðuhæf hérna heima þar sem ég sit með próna í höndunum...... og ég á sko alveg til að láta þá heira það :^)  heeh er alveg þolinmóðust í heiminum::: RIGHT en samt stuð heheh.

Það er svosem ekkert mikið að gerast hjá mér þessa dagana.... svolítið frábrugðið því sem var á meðan ég vann í bænum :$  ég hef meira að segja tíma fyrir vini utan vinnutíma hehehe.....

EEEEnn eins og sést þá lýsi ég hér með eftir Bimbó!! ég var að hlusta á útvarpið í vinnunni og lagið "hæ stína stuð... " var semsagt í útvarpinu og ég einhverneginn sat þetta bimbó svo í mér!!  HVER ÁTTI BIMBÓ???

Svo auglýsi ég líka eftir einu stykki af ræktar-félaga ;) vantar einhvern til að draga mig upp af mínum feita rassi.. og koma mér í ræktina!!!! þetta stefnir í ljótt skal ég segja ykkur8|  ennn nóg um það

Vinnan gengur fínt, jólahlaðborðaverktíðin (vá langt orð) er rétt að byrja þannig að Desember verður helgaður vinnu hjá mér... ooogg já ég fæ sko frí jól OOOGGG áramót!! bara nice!! engin vakt þar í ár

en þið sem nennið að lesa ruglið í mér verðið að láta þetta duga í bili þar sem ég er mjóg busy við að lesa annara manna blogg :haha:

over an out Steinunn


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 15:24:48 / mýrdal

Þá urðu Guðirnir geggjaðir!!

Já það er svoleiðis GRENJANDI rigningarslidda núna!! vááá en það er svosem í lagi þar sem gluggarnir voru nú ekkert voðalega hreinir.... en þeir eru það núna:D annars voða lítið að frétta af mér eins og venjulega:) jú mér er boðið í afmæli hjá honum Elsku valda mínum hann er loksins að verða löglegur í ríkið (vonum bara að veðurspáin klikki þannig að ég komist) ég væri alveg til í að hitta einhvað af þessi vox fólki (ef fólk á að kalla heheheh) með öl í hönd...... er eiginlega bara farin að sakna þeirra:$  það kemur ekkert í staðin fyrir þau sko!! heheh er hætt þessu "væli" áður en tárin koma hehe

núna eru bara 13 Dagar þangað til Stóra systir á afmæli og bara 20 dagar þangað til mitt afmæli er og svo bara 21 dagur þangað til ELSKU MAMMA á stórafmæli!! 

En allavega Vinnan gengur fínt allt það, þarf að rjúka....... ;)

kv Steinunn


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 17:29:14 / mýrdal

Ótrúlega dugleg...

...Að blogga eða þannig:lol: en vegna mikilla áskoranna (takk stella hehe) þá kemur hérna eitt verulega þunnt, svona rembingur í mikilli ritstíflu:^) mér finnst alveg merkilegt þegar maður reynir og reyinir að finna einvhað til að skrifa um og strokar svo alltaf út aftur!! hversu sorglegur getur maður orðið hehehe

ÆÆ vá er ekki að ná að kreista neitt út núna heehhe reyni aftur seinna ehheheh    (lesiði bara stellu blogg á meðan) ;) blog.central.is/blackjacketgang


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 22:11:54 / mýrdal

Nú er frost á frónni....

Já það er sko kalt úti núna Brrrrr oj barasta!! en það þýðir víst ekkert að setjast niður og grenja... bara klæða sig í fleyri peysur :lol: er búin að vera í  2 síðan ég kom heim! já verð að segja að ég er meiri sól manneskja en hitt...... nema náttúrulega ef það er Snjór ;)

Ég er búin að vinna fyrstu vaktina mína á nýja vinnustaðnum mínum :D  voða fínt bara.. smá tilbreyting að vera búin um kl 22 og að geta LABBAÐ heim úr vinnunni!   Ég rakst á smá svona grein á einhverju bloggi um daginn þar sem var verið að tala um hvað var "cool"  í "gamla" daga eins og td:

Nintendo: Allir þá meina ég AAAllir sem ég þekkti áttu svona leikjatölvu og jú ég þar með talin, meiriháttar skemtilegt;) er sko alveg til í leikina ef  ÞÚ átt þá til!!  Við Silja áttum meira að segja Super Mario Bros tösku... og Silja átti Derhúfu.. svaðalega svalar systur heehh

Körfuboltamyndir: já átti einhvern góðann dass af þessum spjöldum..... þrátt fyrir að hafa minnstan áhuga og hvað þá vit á körfubolta!! en jú það var svalt að eiga körfuboltamyndir;)

Pox: Jú átti nú einhvað af  því en veit nú ekki ennþá út á hvað þetta gekk eiginlega:$

Bravo Blöðin: þar fór fermingarpeningurinn :lol:

Baywatch: Hoffmaister eins og ég heirði hann kallaðan á spáni...neinei uss hvað hann var að meika það!! ásamt Brjóstakonunum....

Gallabuxur með röndum: ótrúlega þægilegar.. án efa bestu buxur sem ég hef átt!!

Snuð: Í smá tíma sást varla framan í fólk í skólanum fyrir snuðum... já næstum fullorðið fólk með munnin fullan af snuði!!!! Ekki spurja, ég veit ekki hvað málið var! :S

já góðar minningar! munið þið eftir einhverju öðru skemtilegu???


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 18:54:53 / mýrdal

Allt gott þarf víst að taka enda ;(

ÚFF hvað það er erfitt að sætta sig við alla þessa erfiðleika sem ég geng í gegnum núna........ Semsagt báða, Spánn er búinn í bili ooooggg mér er KALT!! :lol: ohh það þaft svo sterk bein til að vera ég heheheh;)

En annars var ferðin BAAARAA nice, við tókum  viku í að fara bara á markaðina, keira aðeins um og að kíkja út með Karó og Agga .... eftir "erfiða" daga á ströndinni ;) alveg frábært skal ég segja ykkur! Við Tókum lína "Örlítinn" rúnt eitt kvöldið, keyrðum alveg lengst upp í ...... Sveit og komum svo við í bænum San miguel á leiðinni til baka :)

Tóti og Bogga komu svo á miðvikud í síðustu viku og fóru heim deginum á undan okkur, það var ekkert smá gaman að fá þau út!! Jón Gunnar varð 30 ára þann 22... Hverjar eru líkurnar á að verða 30 ára á Flöskudegi??8| en já fórum fínt út að borða í tilefni dagsins og tókum svo Rölt í down town torre (auðvitað með viðkomu í bestu ísbúð í HEIMINUM!!)  svo núna á mánudaginn... minnir mig alveg öruglega fórum við rúnt inn í Alicante og svo í bæ sem heitir Elche oggg vááá hvað ég ætla að skoða það betur næst.... Geðveikt flott zara búð þar!! Að labba inn í hana var eins og að labba inn í Höll... fór svolítið hjá mér að labba þarna inn í sandölum og bundnu pilsi:lol:

En já læt þetta gott heita ég set svo myndir inn núna fljótlega...                                         Kiss kiss og knús knús


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 07:50:16 / mýrdal

14.09.06

jújú þessi dagur rann loksins upp ;) er semsagt hætt á vox, er á flýg út til spánar eftir 5 tíma og byrja svo í nýju vinnunni 1. Okt......

en samt enginn tilgangur með þessu bloggi nema bara að deila því með ykkur að ég er að fara út!!!

OOOGG jú hún Elsku Inga Rós Eignaðist strák núna 12. sept til hamigju með það ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 14:16:16 / mýrdal

Halló

Jæja hvað segir fólkið þá???

Það er svvooo leiðinlegt að hanga svona heima í veikindarfríi að það hálfa væri sko bara alveg mikið meira en nóg!! jú er semsagt búin að sitja heima í rúma viku og má ekkert gera.... skemtilegt :lol: Mæli sko engan veginn með þessu ógeði! ef þú ert í veseni með hálskirtlana fáðu þá MARGnota reseft fyrir sýkla lyfjum og slepptu aðgerðinni.. ég er gjörsamlega að drepast úr leiðindum hérna!! en ælta samt að rúlla mér á patró til mömmu og pabba og hennar elsku freyju minnar og hafa það gott í 3 daga ;) ekki slæmt það skal ég segja ykkur svo má ég byrja að vinna á miðvikudaginn..

Annars er bara voða lítð að frétta... þessi er ólétt og hinn er að skilja o.s.frv.... JÚ eitt ansi skemtilegt sem ég er að spá í að deila með ÞÉR!! á þessum tíma eftir 2 vikur verð ég stödd í leifsstöð eða jafnvel bara rétt að fara í loftið til að liggja í sólinni í 2 vikur úúú je beibí Spánn here i com...

En já ætla að fara og spilla hundinum aðeins :klikk: bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 14:08:51 / mýrdal

Þvílíkt og annað eins....

Maður gæti bara haldið að ég væri alveg mest busy manneskjan á landinu... en svoleiðis er það sko alls ekki ha.. Þessa dagana ligg ég í rúminu og rembist við að reyna að ná mér eftir hálskirtlaaðgerð, og sá sem laug því að fólki að það væri gott að borða ís við þessar kringumstæður er bara mesti rugludallur ever!! maður á bara ekkert að éta... bara nógu mikil verkjalyf og þá ætti maður barasta að gega sofið þetta af sér:$ ég er allavega komin góða leið með það...

Hehe þið sem þekkið mig einhvað vitið að ég er sko ekki mikið fyrir að vera að éta einhver verkjalyf.... þegar ég var komin inn á sjúkrahúsið og var að bíða efitir að komast inn í aðgerðina var ég látiln éta lyf ca hálftíma áður en ég fór inn.. hahah 3 sterkar verkjatöflur og svo kærileysistöflu lika!!! ég semsagt man ekki eftir þegar mér var rúllað inn!!! gjörsamlega úr heiminum vaknaði svo bara með nefið fullt af slöngu og alveg í tómu tjóni.. svo seinna um daginn rankaði ég við mér þá stóð kona fyrir framan mig með stíla í glasi og sagði "hérna eru verkjalyfin þín viltu hjálp??" uuu nei takk ég held ég rati alveg sjálf takk, er fólk bara í alvöru að þiggja hjálp8| já takk ertu til í að kippa þessu í liðinn fyrir mig og setur svo bara bossann upp í lofið!! nei held ekki sko....

en nóg af rugli ætla að horfa á dvd

kiss kiss og knús knús


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leiðist þér??